Vinnuferli okkar byggist á mikilli reynslu af gerð auglýsinga og ýmiskonar útgáfu síðastliðin 20 ár. Við teljum okkur hafa ferska sýn og gott auga fyrir hönnun.

Við veitum persónulega og markvissa þjónustu sem aðlagar sig að þínum þörfum og með það að leiðarljósi að markaðsféð nýtist sem best.

Verklýsing

Gott samtal á sér stað í byrjun ferlisins sem leiðir til gerð verklýsingar. Þarna koma fram allar helstu upplýsingar um verkefnið og hvert það skal leiða.

Tilboðsgerð

Að úttekt lokinni með greinagóðri verklýsingu er gert tilboð í verkið. Þar er verkið skoðað i heild sinni og leið fundin sem hagnast báðum aðilum með tilliti til nýtingar markaðsfé og tíma sem stofan mun setja í verkið.

Hugmyndavinna

Rannsóknar- og hugmyndavinna er gerð í áframhaldandi samtali við viðskiptavininn, þar sem allir fletir málsins eru skoðaðir á skapandi hátt og lausnir fundnar.

Hönnun

Tilraunir hefjast á hönnunarstigi þar sem form, litir, texti og hugmyndir eru grundvöllurinn að vel heppnuðu markaðsefni.

Afhending

Efnið er loks sent til samþykktar og í kjölfarið hefst ferli fram og til baka milli okkar og viðskipta-vinarins. Niðurstaða er fengin og afhending fer fram.

Verklok

Að verkefni loknu eru málin yfirfarin með viðskiptavininum. Ríkir ánægja með framkvæmd og útkomu verkefnisins? Getum við lært eitthvað af ferlinu sem mun þá nýtast báðum aðilum í framtíðinni?

Hafðu samband og við skoðum málið saman.

Auglýsingastofa I Spektrum I logo-fotur

792 1050

Hafðu samband og við skoðum málið.

Auglýsingastofa I Spektrum I logo-footer

White box792 1050

Scroll to Top